Dimma

Fös13Mar22:00Dimma

Klukkan

(Föstudagur) 22:00

Upplýsingar

DIMMA
heldur sína fyrstu tónleika á árinu á Græna Hattinum, Akureyri en þar hafa þeir
áður haldið nokkra af sínum bestu tónleikum.

DIMMU
þarf vart að kynna enda ein vinsælasta rokksveit landsins undanfarin ár og hafa
þeir gefið út fimm breiðskífur, jafnmargar tónleikaplötur og átt fjölda laga sem
farið hafa hátt á öldum ljósvakans.

Í
lok síðasta árs sendi sveitin frá sér fyrsta lagið með nýrri liðskipan en það
var lagið „Þögn“ sem notið hefur talsverðra vinsælda.

Þeir
fylgdu því svo eftir með nýja laginu „Almyrkvi“, sem er framlag DIMMU til
Söngvakeppninnar 2020.

Eitthvað
sem fæstir aðdáendur sveitarinnar áttu von á, enda hefur Söngvakeppnin hingað
til varla talist hefðbundinn vettvangur fyrir kraftmiklar rokksveitir í þyngri
kantinum til að koma tónlist sinni á framfæri.

Þessi
lög verða að sjálfsögðu leikin á tónleikunum ásamt úrvali af eldri perlum
sveitarinnar og því ætti enginn rokkunanndi að láta sig vanta á DIMMU á Græna Hattinum.

 

DIMMA:

Stefán
Jakobsson : Söngur

Ingó
Geirdal : Gítar

Silli
Geirdal : Bassi

Egill
Örn Rafnsson : Trommur

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð