Eagles heiðurstónleikar

Fös04Mar21:00Fös23:00Eagles heiðurstónleikar

Klukkan

(Föstudagur) 21:00 - 23:00

Upplýsingar

Eyrnakonfekt fyrir alla Eagles aðdáendur á Græna Hattinum
The Eagles þarf varla að kynna fyrir neinum en hún er ein vinsælasta hljómsveit fyrr og síðar. The Eagles hefur selt yfir 200 milljón hljómplötur á heimsvísu, en bandið var stofnað árið 1971 og er enn starfandi í dag.
Hver þekkir ekki lög á borð við Hotel California, Take it easy, Lying Eyes, Tequila Sunrise, Desperado og Peaceful easy feeling svo fátt eitt sé nefnt. Hljómsveitin á ótal mörg vinsæl lög sem hafa verið mikið spiluð í gegnum árin.
Þeir íslensku tónlistarmenn sem ætla að flytja þessa mögnuðu slagara Eagles eru þeir Jógvan Hansen, Matthías Matthíasson og Vignir Snær Vigfússon og Gunnar Leó Pálsson og hafa þeir verið fremstir á sínu sviði í mörg ár og ætla þeir þrír að flytja helstu lög Eagles. Enginn sannur Eagles aðdáandi verður svikinn af að láta sjá sig Á Græna Hattinum þann 4. mars.

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð

Submit a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *