GDRN

Lau11Sep21:00Lau23:00GDRN

Klukkan

(Laugardagur) 21:00 - 23:00

Upplýsingar

Söngkonan GDRN og band koma á Græna Hattinn og flytja tónlist af nýjustu plötu hennar ,,GDRN“ laugardaginn 11. September næstkomandi

Vart þarf að kynna landsmenn fyrir Guðrúnu Ýri Eyfjörð sem stimplaði sig inn í íslenska tónlistarsenu undir listamannsnafninu GDRN með plötunni ‘Hvað Ef’ árið 2018. Síðan þá hefur hún sungið sig inn í hjörtu landsmanna með frumlegri tónlist og einstakri sviðsframkomu. Á Íslensku tónlistarverðlaununum 2019 hlaut Guðrún fern verðlaun, þar á meðal fyrir popp-plötu ársins, lag ársins og sem söngkona ársins. Nýverið hefur hún verið að gera garðinn frægan í leiklistinni þar sem hún tók að sér hlutverk Grímu sem aðalleikona í Netflix sjónvarpsþáttaröðinni Kötlu. Guðrún er því spennt að komast aftur á svið og fá að flytja tónlist.

Hún vann hörðum höndum ásamt þeim Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni, Arnari Inga Ingasyni og fjöldanum öllum af hæfileikaríkum listamönnum að nýrri plötu sem ber nafnið GDRN sem kom út þann 21. febrúar 2020. Lög af plötunni verða flutt á tónleikunum ásamt breiðu úrvali af áður útgefinni tónlist hennar.

Hljómsveitina skipa Bergur Einar Dagbjartsson, Magnús Jóhann Ragnarsson, Arnar Ingi Ingason & Rögnvaldur Borgþórsson



Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð

Submit a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *