GDRN

Fös06Nóv21:00Fös23:00GDRN

Klukkan

(Föstudagur) 21:00 - 23:00

Upplýsingar

Vart
þarf að kynna landsmenn fyrir Guðrúnu Ýri Eyfjörð sem stimplaði sig inn í
íslenska tónlistarsenu undir listamannsnafninu GDRN með plötunni ‘Hvað Ef’ árið
2018. Síðan þá hefur hún sungið sig inn í hjörtu landsmanna með frumlegri
tónlist og einstakri sviðsframkomu. Á Íslensku tónlistarverðlaununum 2019 hlaut
Guðrún fern verðlaun, þar á meðal fyrir popp-plötu ársins, lag ársins og sem
söngkona ársins.

 

Í
febrúar gaf GDRN út samnnefnda plötu sem var unnin með  þeim
Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni, Arnari Inga Ingasyni og fjöldanum öllum af
hæfileikaríkum listamönnum. Platan verður flutt í heild sinni á tónleikunum
ásamt breiðu úrvali af áður útgefinni tónlist. Þetta er viðburður sem enginn má
láta framhjá sér fara.

Hljómsveitina
skipa Bergur Einar Dagbjartsson, Magnús Jóhann Ragnarsson, Arnar Ingi Ingason
& Rögnvaldur Borgþórsson

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð