Moses Hightower ásamt gestum - Búum til börn

Lau12Jún21:00Moses Hightower ásamt gestum - Búum til börn

Klukkan

(Laugardagur) 21:00

Upplýsingar

Þegar
fyrsta plata hljómsveitarinnar Moses Hightower, Búum til börn, kom út
í júlí 2010 voru gagnrýnendur og hlustendur sammála um að hér kvæði
við nýjan tón í íslenskri tónlist. Útsetningar, hljóðheimur og
spilamennska sóttu óspart í sálartónlist 7. og 8. áratugar, en textar
þóttu minna á íslenskt lopapeysupopp frá sama tímabili, ekki síst
Spilverk þjóðanna. Í öllu falli var plötunni tekið fagnandi, og lögin
„Vandratað“ og „Bílalest út úr bænum“ hljómuðu látlaust úr viðtækjum
landsins. Í kjölfarið birtist platan á hinum og þessum listum yfir
bestu plötur ársins, og sveitin fékk tilnefningar til Íslensku
tónlistarverðlaunanna fyrir plötu ársins og textahöfunda ársins.
Í
tilefni þess að 10 ár eru liðin frá útgáfu plötunnar (gisp!) ætlar
hljómsveitin að halda tónleika hringinn í kringum landið, skrýdd sömu
silkimjúku gestaflytjendunum og heiðruðu hana á plötunni: Óskar
Guðjónsson leikur á sax, Samúel Jón Samúelsson á básúnu og Kjartan
Hákonarson á trompet og flugelhorn, og bakraddir syngja Bryndís
Jakobsdóttir, Ragnheiður Gröndal og Sigríður Thorlacius.
Sannkallaðir
sparitónleikar þar sem platan verður leikin í heild sinni, ásamt
feikivel völdum öðrum lögum Mosesar, og nokkrum glænýjum.

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð

Submit a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *