Vönduð
gleraugu, nægjusemi, fuglabuxur, vandræðalegar þagnir, glás af fönki!
Allt þetta og meira til ætla glæsimennin í Moses Hightower að færa í
trogum norður yfir heiðar og flíka á fílingsmettuðu sviði Græna hattsins
þann 27.desember nk.
Það verða vaxmyndir á sviðinu, vökvi á barnum, vínylplötur við útganginn – ekki láta ykkur vanta!
Forsalan hafin á grænihatturinn.is