Mugison

Lau07Sep22:00Mugison

Klukkan

(Laugardagur) 22:00

Upplýsingar

Eftir 30 tónleika hringferð um landið í sumar ætlar Mugison að enda hér í höfuðstað norðursins, Akureyri

Eiginkona hans, Rúna Esradóttir, hefur beðið hann um að taka “Mjúkison“ tónleika í þó nokkur ár „bara gítar og rödd, ekkert rugl“ – í anda Neil Yong og fleiri, í mesta lagi að fá einhverjar “brjálaðar“ bakraddir með í nokkur lög en annars að fagna einfaldleikanum og röddinni.

“Þó þetta verði einfalt og næs þá verður þetta engin jarðaför, þetta verður fjölbreytt og skemmtilegt” segir Mugison sem er hið mesta ólíkindartól og verður spennandi að heyra og sjá hvernig hann á eftir að skemmta okkur þessa kvöldstund. Það má búast við sögum, sjónhverfingum og sprelligríni en fyrst og fremst göldróttri tónlist.

Mugison hóf ferilinn sem tölvutrúbador en eftir að Murr Murr sló í gegn 2004 hefur gítarinn legið um hálsinn á honum allar götu síðan. Það er magnað hvernig drengurinn nær að vera grófur sem gólandi Úlfur og blíður og meir í næsta lagi. Það eru fáir tónlistarmenn sem hafa náð að setja á sig jafnmargar grímur og tekist á við jafn ólíka stíla í tónlistinni, allt frá raf, rokk, blús, popp, þungarokk, kántrí, barrokk, jazz yfir í þjóðlagastíl.

Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til þess að upplifa eitthvað nýtt og spennandi.

Forsalan hefst fim 20.júní á grænihatturinn.is og tix.is

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð