Sycamore Tree

Fös07Ágú21:00Fös23:30Sycamore Tree

Klukkan

(Föstudagur) 21:00 - 23:30

Upplýsingar

SYCAMORE TREE Á GRÆNA HATTINUM Í FYRSTA SINN

Hljómsveitin Sycamore Tree sem skipuð er Gunna Hilmars og Ágústu Evu koma fram á Græna Hattinum 7. ágúst næstkomandi. Sérstakir gestir verða : Arnar Guðjónsson og Þorleifur Gaukur Davíðsson.

Tónlist þeirra Ágústu og Gunna hefur vakið mikla athygli hérna heima og erlendis síðustu misseri. Lagasmíðarnar eru seiðandi, sveipaðar dulúð en um leið kraftmiklar. Síðustu mánuði hafa þau verið að vinna með fólki á borð við Rick Nowels upptökustjóra en en hann hefur próduserað tónlist meðal annars fyrir Adele, Madonnu, Lana Del Ray, Lykke Li, SIA, N´Sync, Dua Lipa og marga fleiri.

Í síðustu viku kom út lagið BEAST IN MY BONES og hefur það eins og annað efni frá þeim fengið góðar viðtökur og hafa þau átt mörg lög á vinsældarlistum landsins síðustu árin. Sveitin gefur út tvær plötur á þessu ári og spilar efni af þeim ásamt eldra efni.

Græna Hattinum er það mikil ánægja að fá þau norður í fyrsta sinn.

Meira

Versla miða

Hætt við viðburð

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð