Toy Machine

Fös01Apr21:00Fös23:00Toy Machine

Klukkan

(Föstudagur) 21:00 - 23:00

Upplýsingar

TOYMACHINE – ÚTGÁFU OG -LOKATÓNLEIKAR!

Toymachine gáfu út sína fyrstu og síðustu breiðskífu undir lok árs 2020.
Platan sem ber heitið ROYAL INBREED var í raun yfir 20 ár í vinnslu enda var
bandið á leið í hljóðver árið 2001 þegar það sprakk með látum. En nú öllum
þessum árum síðar hefur draumurinn orðið að veruleika, platan er komin út og
verður útgáfunni loks fagnað þar sem frumburðinn verður fluttur í heild sinni á
þessum sérstöku útgáfu og -lokatónleikum bandsins norðan heiða en meðlimir
Toymachine hyggjast nú leggja niður bandið á ný. Þetta er því síðasti séns til
að sjá þetta goðsagnakennda band á tónleikum á Akureyri, heimabænum þeirra þar
sem þetta allt byrjaði. Allra síðustu tónleikar hljómsveitarinnar verða svo
haldnir þann 2.apríl.

Toymachine sem stofnuð var á Akureyri síðla árs
1996 skipa þeir Jens Ólafsson (söngur), Baldvin Z (tommur), Atli Hergeirsson
(bassi) og Kristján Örnólfsson (gítar).

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð