Hljómsveitin
Hjálmar kemur fram á tónleikum á Græna hattinum 2.apríl. Langt er síðan
Hjálmar sóttu Akureyri heim en þeir hafa í gegnum tíðina verið tíðir
gestir á Græna hattinum. Síðasta árið hefur sveitin unnið að nýrri plötu
sem kom út á árinu. Á tónleikunum munu Hjálmar því leika nýtt efni í
bland við gamla hittara.. Húsið opnar kl 20.00 en tónleikar hefjast kl
21.00.