AC/DC Rokkmessa
Fös26Maí21:00AC/DC Rokkmessa21:00
Versla miða
Klukkan
(Föstudagur) 21:00
Upplýsingar
BRANZI KYNNIR AC/DC ROKKMESSU Á GRÆNA HATTINUM
Upplýsingar
BRANZI KYNNIR AC/DC ROKKMESSU Á
GRÆNA HATTINUM
AC/DC, hinni goðsagnakenndu hljómsveit,
sem á mest seldu rokkplötu allra tíma, Back In Black, og hátt í 200 milljón
plötur seldar um heim allan á rúmlega 40 ára ferli, verður gert hátt undir á á Græna
hattinum, 26. maí næstkomandi.
Ástæða þess að talið er í á þessum tímapunkti er sú að hlavarpið ”Alltaf sama
platan” þar sem þáttarstjórnendurnir Smári Tarfur og Birkir Fjalar fjalla um
eina plötu sveitarinnar í hverjum þætti hefur runnið sitt skeið og því ber að
fagna með rokkmessu.
Á rokkmessunni fá aðdáendur sveitarinnar að heyra lög eins og Back in
black, Thunderstruck, You shook me all night long, Highway to hell, Hells
bells, Let there be rock og fleiri stórsmelli. Það er valinn maður í hverju
rúmi í þessari mögnuðu messu en hljómsveitina skipa þaulvanir og þéttir
íslenskir rokkarar sem hafa gert garðinn frægan í ekki ómerkari sveitum eins og
HAM, DIMMA, DR. SPOCK, VINTAGE CARAVAN, 13 og ENSÍMI.
ROKKMESSU SVEITIN:
Söngur: Stebbi Jak
Söngur: Dagur Sig
Gítar / Bakrödd: Óskar Logi Ágústsson
Gítar / Bakrödd: Franz Gunnarsson
Bassi: Flosi Þorgeirsson
Trommur: Hallur Ingólfsson
Saga AC/DC
Með einfaldlegan að vopni og eldmóðinn til að leggja heiminn að fótum
sér, héldu bræðurnir og gítarleikararnir Angus og Malcolm Young af stað í
ferðalag sem hefur legið um gjörvalla veröldina, allar götur síðan árið 1973
þegar AC/DC var stofnuð í Sydney í Ástralíu.
Talsverðar mannabreytingar áttu sér stað fyrst um sinn en með tilkomu
trommarans Phil Rudd, bassaleikarans Mark Evans og söngvarans Bon Scott, varð
AC/DC loks tilbúin í komandi átök. Segja má að sveitin hafi vart slegið slöku
við næstu árin; stanslausar tónleikaferðir á milli þess sem menn unnu dag og
nótt í hljóðverinu.
Uppskriftin var einföld: auðmelt þriggja hljóma rokk með tvíræðum
textum um partíhald, drykkju og dömur. Frammistaða AC/DC á tónleikum var með
eindæmum öflug. Angus, klæddur skólabúningi, þeyttist sviðsenda á milli. Bon
Scott heillaði viðstadda með sterkri nærveru sinni svo um munaði. Hann bjó yfir
kraftmikilli rödd, var lunkinn textasmiður og það var honum algjörlega í blóð
borið að skemmta fólki.
AC/DC gerði sex plötur með Bon Scott innanborðs og aðdáendahópurinn óx
með hverri útgáfu. Lög á borð við TNT, Whole Lotta Rosie, Let There Be Rock og
Dirty Deeds Done Dirt Cheap fönguðu huga rokkunnenda vítt og breitt og allt
stefndi í rétta átt.
Barningur áströlsku rokkarana uppá toppinn hélt áfram
en átti eftir að taka sinn toll. Fram til þessa
Meira