Bubbi-Regnbogans stræti Græni hatturinn útgáfutónleikar
Fös20Sep22:00Bubbi-Regnbogans stræti Græni hatturinn útgáfutónleikar22:00
Versla miða
Klukkan
(Föstudagur) 22:00
Staðsetning
Græni Hatturinn
Hafnarstræti 86
Upplýsingar
MIÐASALA HEFST Á MIDI.IS FIMMTUD 22.ÁGÚST KL 10 Í tilefni af útkomu nýrrar plötu Bubba Morthens, Regnbogans stræti, sem kom út 9. Ágúst s.l. verða haldnir útgáfutónleikar á völdum stöðum um
Upplýsingar
MIÐASALA HEFST Á MIDI.IS FIMMTUD 22.ÁGÚST KL 10
Í tilefni af útkomu nýrrar plötu Bubba Morthens, Regnbogans stræti, sem kom út 9. Ágúst s.l. verða haldnir útgáfutónleikar á völdum stöðum um landið. Þrjú lög af plötunni eru komin í spilun og viðtökurnar hafa verið hreint út sgt stórkostlegar. Lagið Velkomin rataði í 1. sæti vinsældarlistanna og er Bubbi þar hárbeittur að vanda í umræðunni um flóttamenn. Án þín, þar sem hann syngur dúett með Katrínu Halldóru Sigurðardóttir nýtur álíka vinsælda og Velkomin og nú er þriðja lagið komið í spilun sem ber nafnið límdu saman heiminn minn. Margir halda því fram að að Regnbogans stræti sé eitt af meistaraverkum Bubba. Eitt er víst að byrjunin lofar afar góðu.
Með Bubba Morthens í för eru þeir frábæru tónlistarmenn sem spiluðu á plötunni með honum. Gæfa Bubba er að hafa í gegn um tíðina náð að velja með sér framúrskarandi fólk að vinna með og hér er það svo sannarlega raunin. Guðmundur Óskar Guðmunsson stjórnaði upptökum ásamt Bubba og Adda 800 sem sá um upptökur og hljóðblöndun. Guðmundur Óskar mundar bassann og ásamt honum eru í hljómsveitinni eftirfarandi meðlimir
Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommur
Örn Eldjárn gítar
Aron Steinn Ásbjarnarson blástur
Hjörtur Yngvi Jóhannsson Hljómborð
Meira