Buff - 20 ára afmælistónleikar

Lau02Nóv22:00Buff - 20 ára afmælistónleikar

Klukkan

(Laugardagur) 22:00

Staðsetning

Græni Hatturinn

Hafnarstræti 86

Upplýsingar

Hljómsveitin Buff fagnar 20 ára afmæli í vetur.
Buffið hefur verið frá byrjun ein vinsælasta ballhljómsveit landsins. Á þessum 20 árum hefur sveitin tekið þátt í sjónvarpsþáttum eins og Það var lagið, og Singing Bee. Gefið út fjórar breiðskífur ásamt fjölda laga á safnplötum. Sungið bakraddir á ýmsum stórtónleikum og spilað á öllum stærstu sviðum landsins.
Á þessum 20 árum hefur Buffið þó aldrei haldið tónleika með eigin efni, og er því við hæfi að gera það á afmælisárinu.
Á afmælistónleikum Buffsins munu meðlimir sveitarinnar fara í gegnum söguna í tónum og tali. Frá mörgu er að segja og má því búast við skemmtilegri kvöldstund með lögum Buffsins og öllum sögunum frá þessum 20 árum.

Meðlimir Buff á 20 ára afmælinu eru:

Einar Þór Jóhannsson
Hannes Friðbjarnarson
Haraldur V. Sveinbjörnsson
Karl Olgeirsson
Pétur Örn Guðmundsson og
Stefán Örn Gunnlaugsson.

Forsalan hefst mið.21.ágúst á grænihatturinn.is og tix.is

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð