Flamenco sýningar verða haldnar víða um land dagana 1.-11. júlí.
Ólíkir menningarheimar sameinast í eldheitum dansi, tilfinningaþrungnum
söng og suðrænum gítarleik.
Tilefni sýninganna er útgáfa fyrstu íslensku Flamenco plötunnar El Reino de
Granada sem gefin var út af gítarleikaranum Reynir del Norte. Reynir býr í
Granada, Spáni og starfar þar sem Flamenco gítarleikari. Síðustu ár hefur hann
stundað það að flytja inn spænska Flamenco listamenn til að kynna þetta magnaða
listform fyrir Íslendingum.
Verkefnið Flamenco á Íslandi! er nú að fara í gang í þriðja
skiptið.