Helgi Steinar og Þórhallur - Uppistand
Fimt23Sep21:00Fimt23:00Helgi Steinar og Þórhallur - Uppistand
Upplýsingar
Grínistarnir Þórhallur Þórhallsson og Helgi Steinar mæta aftur til leiks fullhlaðnir af nýju efni eftir Covid baráttuna mikla. 2 Fyrir 1 er fyrsti uppistandstúr þeirra félaga síðan þeir
Upplýsingar
Grínistarnir Þórhallur Þórhallsson og Helgi Steinar mæta aftur til leiks
fullhlaðnir af nýju efni eftir Covid baráttuna mikla. 2 Fyrir 1 er fyrsti
uppistandstúr þeirra félaga síðan þeir skemmtu seinast fyrir áhorfendum um allt
Kína, þar á meðal í borginni Wuhan í nóvember 2019 – örfáum dögum áður en fyrsta
staðfesta smit kom upp þar á bæ.
Þórhallur er vel kunnugur
landsmönnum, ekki bara sem uppistandari og fyrrum sigurvegari Fyndnasti Maður
Íslands, heldur einnig sem útvarpsmaður og leikari. Helgi Steinar er
margverðlaunaður grínisti sem hefur ferðast með uppistand um allan heim, þar á
meðal til Rússlands, Úkraínu og Kína. Hann hefur einnig skemmt á Edinborgar
Fringe hátíðinni tvö ár í röð og séð um framleiðslu á
uppistands-heimildarþáttum.
Þetta verður sýning sem þú
vilt ekki láta fram hjá þér fara!
Meira