Hvanndalsbræður

Lau29Feb22:00Hvanndalsbræður

Klukkan

(Laugardagur) 22:00

Upplýsingar

Hanndalsbræður ætla að henda í tónleika að loknu úrslitakvöldi Ríkissjónvarpsins
fyrir hina einu sönnu Eurovision keppni en það eru einmitt akkúrat 10 ára síðan
bræðurnir boðuðu Gleði og glens í þeirri skemmtilegu keppni. Því ber að fagna.

 

Strákarnir hafa verið inn í æfingarhúsnæði að semja nýtt efni síðan
fyrir jól og nú er komin tími til að leyfa fólki að fá nasaþefinn af nokkrum
þessara laga. Að sjálfsögðu verður nýju lögunum blandað af kostgæfni saman við
gömlu góðu lummurnar.

 

Einhverjar sögur verða látnar fjúka á milli laga og
stefnum við að því að flestir ef ekki allir fari kátir heim.

 

Sjáumst á
Græna hattinum og gerum okkur glaðan dag.

 

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð