Hvanndalsbræður - Skriðið ú skelinni

Þri26Maí21:00Hvanndalsbræður - Skriðið ú skelinni

Klukkan

(Þriðjudagur) 21:00

Upplýsingar

Hvanndalsbræður – skriðið úr skelinni.

Þórólfur Guðnason eða Tóti Sótt eins og við köllum hann hefur gefið grænt ljós á samkomur fyrir allt að 200 manns frá og með 25. Maí. Hljómsveitin Hvanndalsbræður ætlar af því tilefni að slá upp tónleikum í heila viku á Græna Hattinum, þe öll kvöld vikunnar frá mánudagskvöldinu 25. Maí til sunnudagskvöldsins 31. Maí þannig að allir ættu að finna kvöld við hæfi.

Við ætlum öll að fara varlega og taka tillit til hvors annars og þeirra reglna sem settar hafa verið.

Hvanndalsbræður eru í þann mund að hefja upptökur á nýrri plötu og munu nokkur þeirra nýju laga fljóta með gömlum góðum ásamt almennu sprelli.

Mjög takmarkað magn miða verður í boði á öll kvöldin til gæta sem mestrar varúðar og tryggja fólki sitt pláss.

Tónleikar hefjast kl 21.00 öll kvöldin og opnar húsið kl.20.00

 

 

 

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð