Jónas Sig

Lau16Apr21:00Lau23:00Jónas Sig

Klukkan

(Laugardagur) 21:00 - 23:00

Upplýsingar

Jónas Sig og hans frábæra hljómsveit ætla að fagna nýfengnu frelsi þjóðarinnar frá pestinni miklu með kraftmiklum tónleikum á Græna Hattinum um páskana. Eftir að hafa spilað inn mildi og mildað hjartað síðustu messerin þá er ætlunin að breyta aðeins um gír yfir páskana og dusta rykið af kraftmeiri lögum frá ferli Jónasar, rifja upp slagara eins og “Af ávöxtunum skulið þið þekkja þá”, “Vígin falla”, “Ofskynjunarkonan” og fleiri slíka í bland við klassík eins og “Hafið er svart”, “Höldum áfram” og sönginn um hin endalausa veg, sjö sinnum sjö. Rokk & roll í bland við heimspekilegar pælingar og geggjaðan hljóðfæraleik þeirra Adda Gísla, Guðna Finnssonar, Tómasar Jónssonar og Ómars Guðjónssonar. Góðu stuði lofað. Sjáumst um páskana!

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð