Moses Hightower - Búum til börn

Lau26Sep(Sep 26)21:00Sun27(Sep 27)00:30Moses Hightower - Búum til börn

Klukkan

26 (Laugardagur) 21:00 - 27 (Sunnudagur) 00:30

Upplýsingar

MIÐASALA HEFST 5. JÚNÍ

24. og 25. september í Bæjarbíói, Hafnarfirði (með bakröddum)
26. september á Græna hattinum, Akureyri (með bakröddum)
27. september í Fjarðabyggð
2. október í Hljómahöllinni, Reykjanesbæ
3. október í Edinborgarhúsinu, Ísafirði
9. október í Midgard Base Camp, Hvolsvelli

Þegar
fyrsta plata hljómsveitarinnar Moses Hightower, Búum til börn, kom út
í júlí 2010 voru gagnrýnendur og hlustendur sammála um að hér kvæði
við nýjan tón í íslenskri tónlist. Útsetningar, hljóðheimur og
spilamennska sóttu óspart í sálartónlist 7. og 8. áratugar, en textar
þóttu minna á íslenskt lopapeysupopp frá sama tímabili, ekki síst
Spilverk þjóðanna. Í öllu falli var plötunni tekið fagnandi, og lögin
„Vandratað“ og „Bílalest út úr bænum“ hljómuðu látlaust úr viðtækjum
landsins. Í kjölfarið birtist platan á hinum og þessum listum yfir
bestu plötur ársins, og sveitin fékk tilnefningar til Íslensku
tónlistarverðlaunanna fyrir plötu ársins og textahöfunda ársins.

Í
tilefni þess að 10 ár eru liðin frá útgáfu plötunnar (gisp!) ætlar
hljómsveitin að halda tónleika hringinn í kringum landið, skrýdd sömu
silkimjúku gestaflytjendunum og heiðruðu hana á plötunni: Óskar
Guðjónsson leikur á sax, Samúel Jón Samúelsson á básúnu og Kjartan
Hákonarson á trompet og flugelhorn, og bakraddir syngja Bryndís
Jakobsdóttir, Ragnheiður Gröndal og Sigríður Thorlacius.

Sannkallaðir
sparitónleikar þar sem platan verður leikin í heild sinni, ásamt
feikivel völdum öðrum lögum Mosesar, og nokkrum glænýjum!

Meira

Versla miða

Hætt við viðburð

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð