Rumours - Fleetwood Mac Heiðurstónleikar

Lau10Sep21:00Lau23:30Rumours - Fleetwood Mac Heiðurstónleikar

Klukkan

(Laugardagur) 21:00 - 23:30

Upplýsingar

RUMOURS

Til heiðurs
FLEETWOOD MAC

Laugardagskvöldið 10. september n.k. mun föngulegur hópur íslenskra tónlistarmanna stíga á svið á
Græna hattinum og flytja tónlist
Fleetwood Mac,
einnar allra vinsælustu hljómsveitar rokksögunnar.

Hljómplatan Rumours var ellefta plata Fleetwood Mac og kom út árið 1977. Hún sló sannarlega í gegn
því hún sat í efsta sæti Billboard listans í Bandaríkjunum í sjö mánuði.
Rumours er ein söluhæsta hljómplata allra tíma
og hefur selst í meira en 40 milljónum eintaka. Platan hefur ítrekað verið valin
ein af bestu plötum poppsögunnar enda inniheldur hún sígild lög eins og
Don’t Stop, Dreams, Go Your Own Way, Songbird
og
Second Hand News.

Á tónleikunum flytur hópurinn meistaraverkið Rumours
í heild sinni
ásamt úrvali vinsælustu laga Fleetwood Mac. Má þar nefna Little
Lies, Black Magic Woman, Hold Me, Seven Wonders, Gypsy, Big Love og Rhiannon.

Um sönginn sjá JÓHANNA
GUÐRÚN, MAGNI OG MARGRÉT EIR.

Hljómsveitina skipa:

Sigfús Óttarsson (trommur),
Todmobile meðlimirnir
Eiður Arnarsson (bassi)
og
Kjartan Valdemarsson (hljómborð)
og
Kristján Grétarsson leikur á gítar.

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð

Submit a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *