Sing-a-longkvöld með Geirmundi
Lau04Nóv21:00Lau23:30Sing-a-longkvöld með Geirmundi
Upplýsingar
Geirmundur hefur staðið á sviði frá árinu 1958, þegar hann var 14 ára gamall og verið síðan einn afkastamesti tónlistarmaður landsins. Hann hefur komið fram á öllum helstu tónlistar-
Upplýsingar
Geirmundur
hefur staðið á sviði frá árinu 1958, þegar hann var 14 ára gamall og
verið síðan einn afkastamesti tónlistarmaður landsins. Hann hefur komið
fram á öllum helstu tónlistar- og útihátíðum landsins, og sungið í án
efa flestum félagsheimilum og tónleikahúsum landsins. Árið 2008 hélt
Geirmundur upp á 50 ára „bransaafmæli“ í íþróttahúsinu á Sauðárkróki þar
sem hann troðfyllti íþróttahúsið og mörghundruð manns mættu.
Geirmundur
gaf út sína fyrstu breiðskífu ,,Í syngjandi sveiflu“ árið 1989, og
síðan eru plöturnar orðnar tólf. Það er óhætt að segja að flestar plötur
Geirmundar hafi slegið í gegn, og hefur hann verið duglegur við að koma
ungu fólki á framfæri, til dæmis með plötunni ,,Skagfirðingar syngja“
árið 2015, þar sem fjöldi ungra Skagfirðinga, ásamt eldri, sungu lög
hans.
Nú ætlar hann að mæta með harmonikkuna og hljómborðið ásamt
Stefáni Gíslasyni píanóleikara og Jóa Færeyingi og Finnborga
Kjartanssyni bassaleikara að syngja sín allra þekktustu lög með aðstoð
fólksins í salnum sem má gjarnan syngja með. Lög eins og Nú er ég
léttur,Bíddu við, Með vaxandi þrá, Ort í sandinn, Ég syng þennan söng, Tifar tímans hjól, Látum sönginn hljóma, Lífsdansinn
ofl. ofl. ofl.
Meira