Jódís, Hófadynur, hestalagaveisla

Fimt27Apr21:00Fimt23:00Jódís, Hófadynur, hestalagaveisla

Klukkan

(Fimtudagur) 21:00 - 23:00

Upplýsingar

Hófadynur, Hestalagaveisla 

 

Söngkonurnar í Jódísi bjóða til
tónlistarveislu þar sem blandað verður saman huggulegheitum og hamagangi til
heiðurs hestinum, því dulmagnaða dýri. Hér eru þær á ferðinni með alveg glænýja
dagskrá sem öll tengist hestum eða hestamennsku á einhvern hátt. Kántrýskotin
tónlist með útúrdúrum og gjörningum í ýmsar áttir.

Til að njóta tónlistarinnar er
ekki skilyrði að vera hestamaður né vera nátengd hestum því öll ættu að geta
fundið fjörið og frelsið og friðinn sem eru meðal þeirra tilfinninga sem
tónlistin laðar fram.

 

Meðleikarar: Valmar Väljaots,
Kristján Edelstein og Rodrigo Lopes

 

Miðaverð 3900kr

Öll hjartanlega velkomin

Hlökkum til að sjá ykkur

  

Tónleikarnir eru styrktir af
Norðurorku

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð

Submit a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *