Svavar Knútur og Kristjana Stefáns.

Fimt27Júl21:00Fimt23:00Svavar Knútur og Kristjana Stefáns.

Klukkan

(Fimtudagur) 21:00 - 23:00

Upplýsingar

Svavar Knútur

Hinir söngelsku vinir, Kristjana Stefáns og Svavar Knútur, munu fagna sumri
með tvennum tónleikum í júlí. Það er búið að vera mikið um að vera hjá þeim sitt
í hvoru lagi og hafa þau ekki getað haldið tónleika saman í tvö ár, en nú er
komið að því að bæta úr því og kæta velunnara þessa músíkalska pars. Hér er því
um að ræða kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa sakna þess að mæta á þessa rómuðu
dúettatónleika.

Kristjana og Svavar Knútur hafa
undanfarinn áratug vakið verðskuldaða athygli fyrir stórskemmtileg dúettakvöld.
Þar ríkir jafnt gleði sem angurværð ásamt dassi af glensi 
og bera þau vinirnir á
borð fjölbreytta dagskrá dúetta, sem rúmar allt frá Abba til Dolly Parton, með
viðkomu á grænum grundum sígildra íslenskra söngperla 
og neonlitaðra 80’s
slagara, auk frumsaminna laga 
og hinna ýmsu
gleði- 
og tregabomba,
ljóðalestri 
og gamansagna.


Árið 2020 fylgdu þau plötunni Glæðum eftir með nýrri plötu, sem bar nafnið
Faðmlög. Platan, sem var tekin upp á tónleikum, hefur hlotið gríðargóðar
viðtökur áheyrenda þeirra Kristjönu og Svavars og inniheldur mörg af þeirra
eftirlætis lögum, bæði íslenskum og erlendum.

Tónleikarnir í sumar verða annars vegar í Iðnó í Reykjavík laugardaginn 22.
júlí og á Græna Hattinum á Akureyri fimmtudaginn 27. júlí. Þeir hefjast
stundvíslega kl. 20.00 og kostar miðinn kr. 4.900

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð