Uppáhellingarnir og Sigríður Thorlacíus

Fös27Jan21:00Fös23:00Uppáhellingarnir og Sigríður Thorlacíus

Klukkan

(Föstudagur) 21:00 - 23:00

Upplýsingar

Söngtríóið
Uppáhellingarnir býður upp á djassaðan þéttradda samsöng af gamla
skólanum, en leikur auk þess undir hjá sjálfu sér: Steingrímur Karl
Teague á píanó, Rögnvaldur Borgþórsson á gítar og Andri Ólafsson á
kontrabassa.

Þeir
félagar halda nú upp á útgáfu plötunnar „Tempó prímó – Uppáhellingarnir
syngja Jónas og Jón Múla“, en þar flytja þeir söngdansa þeirra Árnasona
í útsetningum Andra; nokkra þeirra vinsælustu, en einnig nokkur fágæt
og áður óútgefin númer. Á plötunni og á útgáfutónleikunum koma þeir fram
með rjóma og sykri; Sigríður Thorlacius syngur hina fjórðu rödd til að
dýpka djasshljóminn og Matthías M.D. Hemstock leikur á trommur.


Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð