0

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

NEW EVENT
Maideniced - Iron Maiden tribute band
Maideniced - Iron Maiden tribute band
geo Græni hatturinn, 600 Akureyri, Hafnarstræti
date 27.09.2025 21:00
price Verð frá - 5.990 kr.
Kaupa miða

MaidenIced, Græni hatturinn 27 september.

Þann 14. mars fyrir 40 árum síðan kom þungarokkshljómsveitin Iron Maiden fram á fyrstu af fjórum tónleikum í Long Beach í Kaliforníuríki Bandaríkjana. Tónleikarnir voru teknir upp fyrir plötuna Live after Death, sem margir telja eina af bestu tónleikaplötum allra tíma og hefur hún svo sannarlega staðist tímans tönn. Lagalistinn er magnaður og inniheldur marga af stæstu slögurum Iron Maiden, enda voru þeir að fylgja á eftir meistaraverkinu Powerslave sem kom út árið áður.

World Slavery Tour tónleikaferðalagið stóð yfir í næstum því heilt ár, spannaði 5 heimsálfur og var í heildina 187 tónleikar. Þetta var eitt umfangsmesta og krefjandi tónleikaferðalag rokksögunnar á sínum tíma. Af tilefni 40 ára afmælisins mun MaidenIced heiðurshljómsveitin blása til tónleika og flytja öll lög af plötunni í bland við klassíska Maiden slagara.

MaidenIced hefur starfað síðan árið 2011. Hún er skipuð reynsluboltum úr íslensku rokksenunni og mikill metnaður er lagður í að gera tónlist Iron Maiden góð skil.

Meðlimir:

Kristján B. Heiðarsson - trommur 

Magnús Halldór Pálsson - bassi 

Ragnar Ólafsson - söngur 

Reynir Baldursson - gítar 

Sigurður Waage - gítar 

“Scream for me Iceland!” Græni hatturinn, 27 september!