0

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

DIMMA
DIMMA
geo Græni hatturinn, 600 Akureyri, Hafnarstræti
date 21.03.2025 21:00
price Verð frá - 6.990 kr.
Kaupa miða

DIMMA heldur sína fyrstu tónleika á nýju ári á Græna Hattinum föstudagskvöldið 21. mars.
DIMMU þarf vart að kynna enda ein allra vinsælasta rokksveit landsins undanfarin áratug og hafa þeir gefið út sex breiðskífur, nokkrar tónleikaplötur og átt fjölda laga sem farið hafa hátt á öldum ljósvakans. 

Um þessar mundir er DIMMA að leggja drög að nýrri breiðskífu, sem áætlað er að komi út síðar á árinu 2025.

Þeir sem til þekkja, vita að DIMMA hefur haldið marga af sínum bestu tónleikum á Græna Hattinum, enda stemningin þar engri lík og ávallt uppselt á tónleika þeirra.
Það borgar sig því að tryggja sér miða í tíma.

DIMMA:
Stefán Jakobsson : Söngur
Silli Geirdal : Bassi & söngur
Ingó Geirdal : Gítar & söngur
Birgir Jónsson : Trommur