0

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

Júníus Meyvant
Júníus Meyvant
geo Græni hatturinn, 600 Akureyri, Hafnarstræti
date 25.10.2024 21:00
price Verð frá - 5.990 kr.
Kaupa miða
Vestmanneyingurinn Unnar Gísli Sigurmundsson byrjaði að glamra á útjaskaðan gítar á tvítugs árunum og fann sig fljótt í tónlistinni.Hann byrjaði að búa til músík undir nafninu Júníus Meyvant og gaf út sitt fyrsta lag Color Decay árið 2014 sem strax náði heimsathygli og var til að mynda valið lag dagsins á Seattle útvarpsstöðinni KEXP.Síðan þá hefur hann haldið áfram að grípa hug og hjörtu um allan heim með lögum á borð við Signals, Gold Laces og Ain’t Gonna Let You Drown. Ferillinn spannar nú þrjár breiðskífur og tvær stuttskífur. Þjóðlagatónlist Júníusar Meyvant er hjartnæm, hlý og kunnugleg og er hinn óheflaði Unnar skammt undan.
Hljóðheimur Júníusar er stór og samansettur af rámri rödd, lokkandi gítarspili, þéttum hrynjanda, lúðrablæstri, hljómborðum og mellotron.