0

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

Kvöldstund með Begga í Sóldögg
Kvöldstund með Begga í Sóldögg
geo Græni hatturinn, 600 Akureyri, Hafnarstræti
date 26.10.2024 21:00
price Verð frá - 5.990 kr.
Kaupa miða

Kvöldstund með Begga í Sóldögg.

Hvenær, ef ekki núna? Hinn mjög svo goðsagnakenndi söngvari Bergsveinn Arilíusson aka Beggi í Sóldögg er flestum unnendum íslenskrar tónlistar kunnugur. 

Ferill hans spannar nú yfir 36 ár. Alveg frá því að hann ásamt nokkrum villingum í Breiðholti stofnuðu rappsveit 1988, yfir í The Commitments uppfærslu Fjölbrautarskólans í Breiðholti í Sóldögg, sólóferil, Vini Vors og Blóma og  Papana svo fátt eitt sé nefnt. Við erum að tala um 36 ár á böllum, tónleikum, uppfærslum og athöfnum, 130 gigg á ári  með Sóldögg fyrir aldamót….

Á Kvöldstund með Begga í Sóldögg fer Bergsveinn yfir ferilinn og flytur öll sín bestu … og næst bestu lög, fer yfir áhrifavalda og  rifjar upp sögur af  skemmtilegum meðreiðarsveinum af vígvellinum , endalausum sveitaballa hringferðum og tónleikaferðum út um allar trissur.

Söngur og sögumaður : Beggi í Sóldögg

Gítar , Banjo og raddir : Gunnar þór Jónsson 

Bassi, Kontrabassi : Jón Ómar Erlingsson 

Slagverk  og raddir : Eysteinn Eysteinsson