Skilmálar miðakaupa

Með því að kaupa miða hjá okkur þá samþykkir þú einnig skilmála okkar
  • Réttar upplýsingar
    Vinsamlega athugaðu miðana þína, hvort réttar upplýsingar komi þar fram. Ekki er alltaf hægt að laga mistök við miðakaup eftirá.

 

  • Skilaréttur
    Eftir að þú hefur keypt miða hjá graenihatturinn.is, í gegnum netið, hefur þú 14 daga frá miðakaupum til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu á miðanum hjá graenihatturinn.is .is, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga. Ef viðburður sá sem keyptur er miði á er haldinn innan 14 daga frá miðakaupum átt þú hins vegar í engum tilvikum rétt á endurgreiðslu eða rétt til þess að skipta miðanum fyrir annan viðburð, sbr. 10. gr. áðurnefndra laga, nema í þeim tilvikum er viðburður fellur niður.

 

  • Trúnaður
    Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

 

  • Afhending miða
    Allar miðar eru afgreiddir í gegnum tölvupóst. Viðskiptavinur mun fá staðfestingu í tölvupósti um að miðakaup hafi farið fram. Sýna þarf miða útprentaðan eða í síma við hurð.

 

  • Afhending vöru ( á ekki við um miðakaup)
    Allar vörur sem seldar eru í gegnum heimasíðuna eru send heim til viðskiptavinar að kostnaðarlausu, Grænihatturinn notast við þjónustu Íslandspóst og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspóst um afhendinguvöru.

 

  • Verð
    Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

 

  • Falli viðburður niður
    Ef dagsetning á viðburð fellur niður er eigendum miðanna boðin sömu sæti á aðra dagsetningu (ef aðrar dagsetningar eru í boði). Ef eigendur miðanna komast ekki á breytta dagsetningu er þeim boðin endurgreiðsla miða. Beiðnir um endurgreiðslu skulu berast graenihatturinn.is eigi síðar en 28 dögum eftir dagsetningu viðburðar sem féll niður.

 

  • Takmarkaður fjöldi miða á ákveðna viðburði
    Á sérstaka viðburði geta kaupendur keypt takmarkaðan miðafjölda. graenihatturinn.is áskilur sér þann rétt að ógilda miða keypta umfram þann fjölda.

 

  • Ábyrgð á eigum 
    Græni hatturinn tekur enga ábyrgð á einkamunum eiganda miða á meðan viðburði stendur.

 

  • Vímuefni
    Meðferð tóbaks og ólöglegra vímuefna er bönnuð á öllum viðburðum sem graenihatturinn.is selur á nema annað komi fram.

 

  • Aldurstakmark
    Aldurstakmark á viðburði ræðst eftir útivistartíma barnaverndarlaga og lögum um vínveitingahús. Börnum yngri en 18 ára er óheimilt að dvelja inni á veitingastað, sem leyfi hefur til áfengisveitinga. eftir kl. 20:00 á kvöldin.

Geymdu miðann/miðana þína á öruggum stað, eins og þú myndir geyma fjármuni eða aðra miða. Graenihatturinn.is tekur ekki ábyrgð á óþægindum sem gætu hlotist vegna falsaðra eða afritaðra miða. Ef upp kemst um afritaða eða falsaða miða gæti ábyrgðarmaður viðburðar neitað öllum handhöfum miða inngangi á viðburð og krafist borgunar fyrir alla afritaða eða falsaða miða frá upprunalegum kaupanda. Dagsetning og tímasetning viðburða gæti breyst án fyrirvara.