Dimma
Lau11Jún21:00Lau23:30Dimma21:00 - 23:30
Versla miða
Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð
Klukkan
(Laugardagur) 21:00 - 23:30
Upplýsingar
DIMMA verður með tónleika á Græna Hattinum, Akureyri laugardaginn 11. júní en 10 ár eru nú liðin frá því að sveitin lék sína fyrstu tónleika á Hattinum og hafa þeir
Upplýsingar
DIMMA
verður með tónleika á Græna Hattinum, Akureyri laugardaginn 11. júní en 10 ár
eru nú liðin frá því að sveitin lék sína fyrstu tónleika á Hattinum og hafa þeir
verið fjölmargir síðan enda ávallt uppselt og stemningin engu lík.
DIMMA
hefur um árabil verið ein allra vinsælasta rokksveit landsins og hefur gefið út
sex hljóðversplötur, fimm tónleikaplötur og átt fjölda laga sem farið hafa hátt
á öldum ljósvakans.
Þá
hefur sveitin einnig hlotið mikið lof fyrir tónleika sína, sem eru kraftmikið
sjónarspil og orkan frá þeim lætur engan ósnortinn en DIMMA var m.a tilnefnd til
bæði Hlustendaverðlaunanna og Íslensku Tónlistarverðlaunanna í ár.
Nýjasta
breiðskífa DIMMU, sem ber heitið Þögn, hefur fengið frábæra dóma og
viðtökur en hún fór í fyrsta sæti Tónlistans yfir mest seldu plötur landsins og
varð þar með fimmta plata hljómsveitarinnar á ferlinum til að ná
toppsætinu.
Á
tónleikunum á Græna Hattinum verða leikin lög af Þögn í bland við öll
vinsælustu lög sveitarinnar og má því búast við eldheitri og sveittri
rokkstemningu að hætti DIMMU.
DIMMA
Stefán
Jakobsson: Söngur
Ingó Geirdal: Gítar
Silli Geirdal: Bassi
Egill Örn
Rafnsson: Trommur
Meira