Dimma
Versla miða
Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð
Klukkan
(Föstudagur) 22:00
Staðsetning
Græni Hatturinn
Hafnarstræti 86
Upplýsingar
DIMMA hefur svo sannarlega risið úr dvala og hefur verið á fljúgandi siglingu um landið undanfarið, þar sem uppselt hefur verið á hverja tónleikana á eftir öðrum og vilja margir
Upplýsingar
DIMMA hefur svo sannarlega risið úr dvala og hefur verið á fljúgandi siglingu um landið undanfarið, þar sem uppselt hefur verið á hverja tónleikana á eftir öðrum og vilja margir meina að bandið sé nú í sínu besta formi til þessa.
Föstudaginn 1. nóv heimsækir DIMMA aftur einn af sínum uppáhaldstónleikastöðum á landinu; Græna Hattinn!
Meðlimir DIMMU eru um þessar mundir að semja nýtt efni fyrir sína sjöttu breiðskífu, sem áætlað er að komi út í lok ársins. Það er því ekki ólíklegt að tónleikagestir Græna Hattsins fái að heyra eitthvað nýtt í bland við eldri perlur.
DIMMA
Stefán Jakobsson: Söngur
Ingó Geirdal: Gítar
Silli Geirdal: Bassi
Egill Örn Rafnsson: Trommur
Forsalan hefst fös.16.ágúst á grænihatturinn.is og tix.is
Meira