GG BLÚS
Fimt09Júl21:00Fimt23:00GG BLÚS21:00 - 23:00
Versla miða
Klukkan
(Fimtudagur) 21:00 - 23:00
Upplýsingar
GG blús er blúsaður rokkdúett frá Álftanesi,
Upplýsingar
GG blús er blúsaður rokkdúett frá Álftanesi, mannaður reynsluboltum úr bransanum. Guðmundur Jónsson (Sálin, Nykur, Trúboðarnir) á gítar og söng og Guðmundur Gunnlaugsson (Kentár, Sixties, Jötunuxar) á trommur og söng.
Tvímenningarnir hafa undanfarin misseri spilað kraftmikla tónlist sína ásamt sígrænum ábreiður hér og hvar, um borg og bý og gáfu út í fyrra sína fyrstu plötu, Punch, við prýðilegar undirtektir. Endilega tékkið á gripnum á Spotify, Bandcamp og víðar.
Nú verður Græni hatturinn heimsóttur í annað sinn og lofar GG blús heilmiklu fjöri þar sem frasaskotin gítarvinna tekst á við óhaminn trommusláttinn og grípandi sönglínur fljóta svo yfir, innblásnar af tregafullum enskum textum og litaðir með hljóðbrotum og þankagangi úr ýmsum áttum – Trúir blúshefðinni en samt móttækilegir nútímanum.
Tónleikarnir hefjast kl…..
Spotify – https://open.spotify.com/artist/0RhOctrIHZCh1FCUdpS0Ja?si=rimGNsN0QyK-9AroYRdexQ
Bandcamp – https://ggblus.bandcamp.com/releases
YouTube – https://www.youtube.com/channel/UClTsaLJdqtbmeC9xBYGjMlw
facebook – https://www.facebook.com/GGblus/
Meira