Með hækkandi sól og gríðarlegum meðbyr ( suðvestan 20 metrar á sekúndu) hafa Helgi og hljóðfæraleikararnir ákveðið að tími sé kominn að smella saman einum tónleikum á Græna hattinum. Með gleðina að vopni og gamla slagara í handraðanum verður rokkað af stað. Enda vorið handan við hornið.