Magga Stína syngur Megas

Lau28Mar(Mar 28)22:00Sun29(Mar 29)01:00Magga Stína syngur Megas

Klukkan

28 (Laugardagur) 22:00 - 29 (Sunnudagur) 01:00

Upplýsingar

 

 

Magga Stína flytur lög og ljóð Megasar ásamt hljómsveit skipaðri tónlistarmönnum úr fremstu röð á Græna Hattinum 28. mars.

Það eru þeir Matthías Hemstock, Jakob Smári Magnússon, Daníel Friðrik Böðvarsson og Tómas Jónsson sem munu láta ljós sitt skína með Möggu Stínu á þessum einstöku tónleikum.

Tónlist Megasar skipar einstakan sess í íslenskri þjóðarvitund og framlag hans til íslenskrar tónlistarsögu og textagerðar er í einu orði ómetanlegt. Á þessum tónleikum hljóma lög hans og ljóð af löngum og ævintýralega fjölbreyttum ferli – eins og Fílahirðinn frá Súrín, Gamli sorrí Gráni, Tvær stjörnur, auk þess sem flutt verða lög Megasar við nokkra Passíusálma Hallgríms Péturssonar.

Látið ekki þennan einstaka viðburð framhjá ykkur fara.

Meira

Versla miða

Hætt við viðburð

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð