Ómar fortíðar - Tónleikar í tilefni plötuútgáfu Ómars Guðjónssonar

Fimt06Okt21:00Fimt23:00Ómar fortíðar - Tónleikar í tilefni plötuútgáfu Ómars Guðjónssonar

Klukkan

(Fimtudagur) 21:00 - 23:00

Upplýsingar

Fimmtudaginn 6.október ætlar
Ómar Guðjónsson að heimsækja okkur ásamt Matthias Hemstock og Tómasi
Jónssyni til að renna í gegnum nýútkomna plötu Ómars, Ómar Fortíðar.

Á plötunni flytur Ómar þekkt lög úr þjóðarsál Íslendinga á hljóðfærið
„fetilgítar“
eða „pedal steel“ á móðurmáli hljóðfærisins. Með Ómari á
hljómplötunni eru þeir Matthías Hemstock á slagverk og Tómas
Jónsson á píano og hljóðgervla.
Lögin eru t.d úr smiðju Karls
Ó Runólfssonar, Jónasar Tómassonar, Árna Thorsteinssonar og Bjarna
Þorsteinssonar. Öll frá árunum 1930 til 1960.
Ómar Guðjónsson
hefur víða borið niður, í flestum stílum og stefnum ryþmískrar
tónlistar. Hann hefur líka rannsakað hljóðheim gítarsins – og
fetilgítarsins – meira en margur. Það er meira en
aldarfjórðungsreynsla í þeim fingrum sem hér túlka með nýjum
hljómi margar gersemar úr íslenskri sönglagahefð. Hann hnikar öllu
til, sleppir orðunum, breytir hljómunum, styttir og lengir upprunalengd
laglínunótnanna og skapar ný lög eins og sá djassmaður sem hann
er. En þessi nýju gömlu lög snerta íslensk hjörtu á allt annan
hátt en frumlegar útgáfur af klassískum djasslögum; hann er
nefnilega að endurskapa lög sem við ólumst upp við og óma inni í
okkur. Og kannski ræður það úrslitum að þessi endursköpun er borin
fram af sterkri ljóðrænni tilfinningu sem kallast á við rómantíkina
sem réði ferð hjá höfundum laganna.

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð