Singalong-kvöld með Geirmundi Valtýssyni

Lau21Jan21:00Lau23:30Singalong-kvöld með Geirmundi Valtýssyni

Klukkan

(Laugardagur) 21:00 - 23:30

Upplýsingar

Geirmundur
hefur staðið á sviði frá árinu 1958, þegar hann var 14 ára gamall og
verið síðan einn afkastamesti tónlistarmaður landsins. Hann hefur komið
fram á öllum helstu tónlistar- og útihátíðum landsins, og sungið í án
efa flestum félagsheimilum og tónleikahúsum landsin. Árið 2008 hélt
Geirmundur upp á 50 ára „bransaafmæli“ í íþróttahúsinu á Sauðárkróki þar
sem hann troðfyllti íþróttahúsið og mörghundruð manns mættu.

Geirmundur
gaf út sína fyrstu breiðskífu ,,Í syngjandi sveiflu“ árið 1989, og
síðan eru plöturnar orðnar tólf. Það er óhætt að segja að flestar
plötur Geirmundar hafi slegið í gegn, og hefur hann verið duglegur við
að koma ungu fólki á framfæri, til dæmis með plötunni ,,Skagfirðingar
syngja“ árið 2015, þar sem fjöldi ungra Skagfirðinga, ásamt eldri, sungu
lög hans.


ætlar hann að mæta með harmonikkuna og hljómborðið ásamt Stefáni
Gíslasyni píanóleikara, Finnboga Kjartanssyni bassaleikara og Jóa
Færeyingi trommara að syngja sín allra þekktustu lög með aðstoð fólksins
í salnum sem má gjarnan syngja með. Lög eins og Með vaxandi þrá, Ort í
sandinn, Ég syng þennan söng, Lífsdansinn ofl. ofl. ofl.

Meira

Versla miða

Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð