Svavar Knútur
Fimt08Júl21:00Svavar Knútur21:00
Versla miða
Miðar eru ekki lengur í boði fyrir þennan viðburð
Klukkan
(Fimtudagur) 21:00
Upplýsingar
Svavar Knútur söngvaskáld hefur fyrir löngu getið sér gott orð fyrir bæði lagasmíðar sínar, flutning á sígildum íslenskum alþýðulögum og einnig skemmtilega og húmoríska sviðsframkomu þar sem sögur og vangaveltur um heiminn fá
Upplýsingar
Svavar Knútur söngvaskáld hefur fyrir löngu getið sér gott orð fyrir bæði
lagasmíðar sínar, flutning á sígildum íslenskum alþýðulögum og einnig
skemmtilega og húmoríska sviðsframkomu þar sem sögur og vangaveltur um heiminn
fá að njóta sín.
Í sumar fer Svavar Knútur í langþráð tónleikaferðalag um Ísland, einn með
gítarinn sinn og spilar á mörgum af sínum uppáhalds stöðum, þar sem notaleg og
innileg stemning verður í fyrirrúmi og áherslan lögð á samfélag og ánægjulegar
samverustundir. Hlátur og gáski haldast í hendur við alvarlegri og dýpri tóna,
því á misjöfnu þrífast börnin best. Svavar Knútur hlakkar mjög til að halda
þetta tónleikaferðalag, því mörg ár eru síðan hann fór einn á tónleikaferð um
Ísland.
Á dagskrá verða lög úr ranni söngvaskáldsins auk þess sem Svavar mun einnig
flytja nokkur af sínum eftirlætis þjóðlögum og sígildum sönglögum, hverra
orðstír er mikilvægt að halda á lofti og halda lifandi í samfélagsminni.
Meira